|
|
|
Heim
Margir halda því fram að Hiphop sé tónlistarstefna.
Það er alrangt, því Hiphop er menningarkimi og/eða lífstíll og nær yfir mun
breiðari svið en eingöngu tónlist.
Hiphop er því eitt heiti yfir margar stefnur og strauma.
Þeir sem aðhillast þessum menningarkima og/eða lífstíl nefnast Hiphoppas, á íslensku yrði það líklega þýtt sem Hiphoppari.
Hiphop menningin hófst í Bronx hluta New York borgar. Allar þessar stefnur og straumar voru í gangi á sama tíma og stór hluti af daglegu lífi fólks. Fyrst var ekki til neitt heiti yfir þessa menningu og þá var talað um Rockin. T.d. “Rockin the floor”, “Rocking the mic”, “Rockin the wall” o.s.frv.
Afrika Bambattaa, guðfaðir Hiphop menningar var sá sem kom með heitið: Hiphop
Hip – Að vera kúl, töff eða flott/ur.
Hop – Notað á 50’s tímabilinu fyrir partý.
Hiphop sem er alþjóðlegt heiti, ber að skrifa rétt. Hiphop, Hip Hop eða Hip-Hop.
Íslenskir fjölmiðlar hafa hingað til reynt að íslenska heitið með að bæta óþarfa aukalegum p’um inn, semsagt Hipphopp eða Hipp Hopp.
Rétt skal vera rétt.
Hiphop er alþjóðlegt heiti hvort sem það er skrifað í einu orði, með bili eða bandstriki.
Oft er talað um fjögur frumefni Hiphop menningar. Þau frumefni eru:
1. Skífuskank (DJ’ing og seinna meir Turntableism)
DJ, talað um skífuskankara á íslensku, sá sem notar plötuspilara og mixer sem hljóðfæri og/eða til að skapa tónlist.
Ekki má rugla sama Plötusnúð og Skífuskankara. Plötusnúður er sá sem einfaldlega spilar tónlist en Skífuskankari sá sem notar plötuspilara sem hljóðfæri, á skapandi hátt.
2. Mc’ing
MC eða Master Of Ceremony, einnig talað um Mic Controller. MC er sá einstaklingur sem semur eða hugsar rímur og flytur þær í ákveðnu flæði yfir takt. Takturinn eða tónlistin heitir Rap tónlist. Gott íslenskt heiti yfir Mc’ing sem hefur fest sig vel í sessi er Rappari.
3. Vegglist (Graffiti)
Graffiti artist er sá sem notar úðabrúsa, penna, blek, málningu og fleira til að tjá sig sem listtamaður.
4. Bboying (Breik)
Bboying er dansstíll. Einnig nefnt Breik. Íslenskir fjölmiðlar kalla listformið einnig oft skrykkdans en það nafn þykir iðkendum ekki við hæfi og nota lítið sem ekkert. Þeir sem stunda listformið kallast Bboys eða Bgirls. Bboying á marga ,,ættingja” eða skylda dansstíla.
Fjögur Frumefni Hiphop menningar er oft notað þegar fyrst er útskýrt hvað Hiphop er eða stendur fyrir. Önnur frumefni innan Hiphop menningar eru einnig:
5. Taktkjaftur (Beatbox)
Listin að skapa tónlist með munninum eða með raddböndunum einum sem hljóðfæri.
6. Taktsmíði (Producing)
Einhverjum gæti þótt að skífuskank og Taktsmíði ætti að fara undir sama hatt. Hver og einn verður að eiga það fyrir sig en mér fannst réttast að minnast á Taktsmíði eitt og sér hér.
Taktsmíði eða á ensku Producing er að skapa tónlist og nota til þess ýmis tól og tæki eins og hjóðfæri, trommuheila, hjóðbúta, plötuspilara o.s.frv.
7. Þekking (Knowledge)
Knowledge eða Þekking. Til að öðlast innsýn inn í menninguna og/eða lífstílinn, þarf að vera vel vakandi fyrir nýjum upplýsingum og ávalt að leita sér nýrra upplýsinga um menninguna og/eða lífstílinn. Að þekkja bakgrunninn er mjög mikilvægt í Hiphop menningunni og þar sem Hiphop er allgjörlega komið af götum Bronx hluta New York borgar til að byrja með, er saga Hiphop menningar mest byggt upp á upplýsingum sem komast áfram mann af manni.
Í þekkingu og er kemur að sögu Hiphop menningar er það nánast óskrifað lögmál að þeir sem eldri eru, búnir að vera lengur að í senunni og jafnvel frá byrjun; eru þeir sem mest á að taka mark á, fremur en upplýsingar sem koma frá þeim sem yngri eru.
8. Slangur (Street Language)
Slangur já, allir vita hvað slangur er. Bara ef litið er á Ísland þá er nóg um slangur. Unglingar hafa sitt eigið slangur og eldra fólk þjóðfélagsins hefur sitt slangur, hjá þeim t.d. stundum komið af dönsku tungumáli.
Hiphop menning eins og aðrir menningarkimar, hefur alltaf haft sitt slangur.
9. Götutíska (Street Fashion)
Tíska er og hefur alltaf verið stór hluti af Hiphop menningu. Fatnaður, skófatnaður, skart og framvegis. Tískustraumar Hiphop menningar hafa breyst mikið með árunum og mun halda áfram breytast.
Jakkaföt, leðurgalli, víður fatnaður eða þröngur fatnaður. lítið skart eða stórt skart, sítt hár eða stutt hár, krullað, slétt, fléttað eða dreadlocks o.s.frv. Allt getur þetta talist Hiphop eftir því sem hver og einn vill.
10. Street Entreprenuerialism (Nýsköpun og frumkvöðlastarf)
Að nýta hæfileika sína innan Hiphop menningar, skapa sér nafn og að vissu leiti selja hæfileika sína innan skynsamlegra marka því allt er gott í hófi.
Skrifað af Gretski. Öll birting, endurútgáfa eða breyting á þessari grein er óleyfileg án samþykki höfundar. |
|
|
|