Saga Bboying á Íslandi frá upphafi til 2006.
Hér er oft stikklað á stóru og þessi tímalína/grein í stöðugri þróun. Tekið saman af Gretski, öll fjölföldun eða endurútgáfa óheimil án leyfis.
Átt þú til efni sem tengist bboying menningu á íslandi, sama hversu lítið það er, endilega senda okkur póst á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Saga BBoying á Íslandi
1983
Fréttastofa RÚV greinir frá nýjum dansstíl frá New York sem nefnist "Breakdance", og er sýnt myndbrot frá þessum nýja dansi.
Þar með hafa íslendingar í fyrsta skiptið séð frá Bboying.
Minnst er á nokkur nöfn úr byrjun íslensku Bboying senunnar, þau eru:
Þórhallur, Sigurður Kjartansson og Stefán Baxter.
1984
Árið sem Bboying menning byrjar að blómstra á Íslandi.
Hægt og rólega varð Bboying af tískubylgju sem gekk yfir landið sem og víða erlendis.
Stefán Baxter, Sigurður Kjartansson og Þórhallur Skúlason, ásamt fleirum aðilum Stofna Bboying hóp(crew) sem nefnist Break Brothers eða Break Bræður.
Arnór Diego ásamt fleirum stofnar Bboying hóp(crew) sem nefnist Ice Breakers.
Ice Breakers og Break Brothers eru tveir stærstu Bboying hóparnir á landinu á þessum tíma og óstaðfestar heimildir segja að báðir hópar hafi bæði umboðsmann og styrktaraðila. Báðir hóparnir gera það gott hvað varðar sýningar og framkomur.
Fleiri hópar, en þó á minni skalanum eru í gangi. Önnur nöfn sem minnst er á í íslenskum fréttamiðlum eru Einar og Eið Snorri(Sorri Brothers).
Rúrik V. Vatnarsson, Stefán Baxter, Hauk Gíslason, Jón Garðar Viðarsson, Sölva Fannar Viðarsson, Björn Árnason, Kristjón Jón Mitchisson, Björn Jörund og Kidda. Magnús Guðmundsson(Maggi Lego) ásamt fleirum stofnar crew’ið Boogie Boys. Aðrir hópar sem minnst er á eru Break Masters, Andriots, Hollywood Breakers, Mistök, Crazy Crew og Streetbreakers.
Útitaflið í Lækjargötu er nefnt sem vinsæll samkomustaður fyrir Bboying ásamt Hallærisplaninu. Skemmtistaðurinn Traffik sem þá var starfandi fyrir 16 ára og eldri stóð reglulega að Bboying keppnum.
Skemmtistaðurinn Hollywood flytur inn tvo dansara, Ron og Jerry sem sýndu einnig á Hollywood. Vitað er til að tveir dansarar frá Hollandi kenndu Bboying í febrúarmánuði, enn ekki eru til nægar heimildir um hvort þar hafi verið um Ron og Jerry að ræða.
The Twins City Breakers komu til landsins og sýndu á skemmtistaðnum Best, 21 júlí. Ynsti meðlimur The Twin City Breakers, Walter var eingöngu 4. ára gamall á þeim tíma og elsti meðlimur The Twin City Breakers var móðir hans sem var 32 ára og sá einnig um umboðsstarf fyrir hópinn.
Bboy crewið The Magnificent Force kom til landsins og sýndi á skemmtistöðunum Hollywood og Broadway þann 10. og 11. ágúst.
Meðlimir úr The Magnificent Force léku og dönsuðu í kvikmyndinni Beat Street.
11. ágúst var auglýst Bboying - hátíð á skemmtistaðnum Hollywood og að þar ætti einnig að fara fram keppni sem The Magnificent Force og Hollywood Breakers myndu dæma.
The Magnificent Force sýndu einnig á stöðum eins og Barnaspítala Hringsins og öðrum skjúkrahúsum en það voru skilyrðin sem Icelandair settu þeim en Icelandair styrktu ferð þeirra til Íslands ásamt KR, Háskólabíó og Broadway.
Að lokum sýndu The Magnificent Force Bboying í hálfleik, í leik KR á móti Liverpool á Laugardalsvelli.
The Magnificent Force var hópur sem var samansettur af mörgum góðum dönsurum eða svokallað "supercrew". Meðlimir í The Magnificent Force voru Mr. wiggles, Fabel, Fast Break, Lando, German, Gary Glide og Kaleema.
Þeir meðlimir sem komu til landsins eftir heimildum Morgunblaðsins, voru Fast Break, Lando, German og Gary Glide.
Í pósti frá Mr. Wiggles, minnist hann þess þó að Kaleema og Fabel hafi verið með í för, hér getur þó verið um misskilning að ræða því þessir dansarar gætu verið búin að skipta um listamanns nafn. Mr. Wiggles minnist einnig á að þarna hafi íslendingar fengið að sjá brautryðjanda í Bboying því Bboy German var sá sem gerði fyrstur alvöru fimleika Thomas Flare í Bboying og fann upp á vindmillu í 90's og Thomas Flare í vindmillu.
New York states Breakers kenna í Best. Engar aðrar upplýsingar um þann hóp er að finna.
Bboying var auglýst í mörgum dansskólum sem nýjasta æðið.
Dansskólar sem nefndir eru: Dansstúdíó Sóleyjar, Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar, Dansskóli Kolbrúnar Aðalssteinsdóttur þar sem Stebbi Baxter kenndi, Skemmtistaðurinn Best, Kramhúsið, Dansskóli Hermanns Ragnars, Félagsmiðstöðin Agnarögn og Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar. Jafnvel sumarskóli fimleikafélagsins Gerplu auglýsir kennslu á Bboying.
Heimildir eru um að þrír íslendingar; Arnór, Sigurður og Björn hafi farið erlendis, til New York að taka þátt í alþjóðlegri Bboying keppni.
Stefán Baxter ferðast með Dansskóla til Spánar og Þórhallur Skúlason sýnir Bboying á Mallorca, Spáni.
Sýningar voru auglýstar á ýmsum skemmtistöðum og samkomum eins og Sigtúni, Traffic, Hollywood og Klúbbnum og í félagsmiðstöðvum eins og Þróttheimum, Tónabæ og Bólinu. Ýmsir skemmtikraftar reyna að nýta sér Bboying - æðið eins og t.d. Laddi sem reynir fyrir sig sem Bboy í gervi Eiríks Fjalars. Útihátíðir eins og Bindindismótið í Galtalækjarskóg ráða Stefán Baxter sem skemmtikraft og Viðeyjarmótið sögfræga ætlaði sér að halda Bboying keppni. Dalalíf í Þjórsárdal hélt einnig Bboy keppni og var með Bboy sýningu Gaukurinn í Þjórsárdal réð Bboys til að sýna. Sumarhátíð Háskólabíós ræður Bboys til að sýna og ökutækjasýningar ráða einnig Bboys til að sýna.
Don Cano gallarnir og Adidas top ten skórnir þekkjast ekki undir neinu öðru nafni en Break fatnaður.
Freestyle keppni Tónabæjar og Discodans keppni Traffic einkennast mikið af Bboying.
Talað er um að Íslandsmeistrar ársins séu Stefán Baxter og Viðar Ævarsson og talað um að Stefán Baxster sé sá eini íslenski Bboy sem hafi sýnt á erlendri grund.
Ekki var auðvelt fyrir íslenska Bboys/Bgirls að fylgjast með menningunni og þróuninni í Bboying á þessum tíma og voru íslenskir Bboys/Bgirls að mestu leyti sjálfmenntuð.
Bboying er ekki eingöngu stundaður á höfuðborgarsvæðinu því heimildir eru fyrir að Bboying hafi verið stundað í Vestmannaeyjum, Sauðárkróki, Ólafsfirði, Akureyri og á Ísafirði. Eflaust hefur ,,æðið" náð að teygja anga sína í alflest þorp landsbyggðinnar.
Sama ár varð lagið Buffalo Gals með Malcom McLaren vinsælt, en í því myndbandi sést t.d. Rock Steady Crew bboyast í Rock Steady Park í NYC. Lagið Break Machine nær einnig miklum vinsældum og ekki má gleyma Hey You með Rock Steady Crew.
Kvikmyndirnar BeatStreet og Breakdance 1 - Breakin koma út og verða báðar vinsælar á heimsvísu.
1985
Bboying er ekki lengur mesta trendið en samt ennþá ,,inn".
Skemmtistaðurinn Traffic heldur áfram með bboy sýningar og dansskólar eins og Dansstúdíó Sóleyjar, Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar, Dansskóli Kolbrúnar Aðalsteinsdóttur og Dansskóli Sigurðar Hákonarssonar kenna enn Bboying.
Bboy að nafni Sigurður lendir í 2. sæti í Freestyle keppni Tónabæjar.
Bíómyndin Breakdance 2 - Electric Boogaloo er sýnd í Austurbæjarbíó og Hafnarfjarðabíó, myndin gengur ekki jafnvel í landsmenn og sú fyrri og fær t.d. mjög slæma dóma í Morgunblaðinu.
Nafnlaus einstaklingur skrifar í Morgunblaðið, 25. apríl að í Breiðholtinu, þar sem einstaklingurinn búi, að ekki sé varla hægt að finna auðann vegg eða strætóskýli sem ekki er búið að ,,Krassa" á. Og að í alflestum tilfellum sé orðið ,,Break'' skrifað.
1986
Kjörís framleiðir íspinna sem nefnast Break-pinnar.
1990
Skemmtistaðurinn Tunglið hélt svokallað ,,Traffic" kvöld. Stefán Baxter þeytti skífum og Viðar, Pétur, Þórhallur og Arnór Diego sýndu bboying.
Icebreakers sýna á Vilta Tryllta Hollywood sama kvöld ?
1997
Tónlistar myndbandið It’s like that með Run-DMC endurútgefið í útgáfu Jason Nevis. Þekktir bboys/bgirls sjást í myndbandinu sjást eins og krayz E Kujo og Asia One.
Danssmiðjan sem þá var staðstett í Skipholti auglýsti eftir Bboys/Bgirls til að stofna Bboy crew. Seinna er Bboy crew stofnað en meðlimir í því voru KrisB, Self One, Mummi, Ósk, Gísli Green og fleiri. Sá hópur var nafnlaus í ca. hálft ár en var þá nefndur Shakers.
Heiðar Ástvaldsson flutti inn danska funkstyle dansarann Amir El Fataki og auglýsti bboy námskeið með honum. Amir gerði sitt besta að kenna bboying en ég hef mjög góðar heimildir, upp á 110% að ekki hafi einu sinni verið kennt six step á þessu námskeiði.
1998
IM ’98 eða Íslandsmeistaramótið 1998 er haldið á Broadway. 4 dómarar dæma keppnina. Dómararnir eru Orville sem á bakgrunn úr African dansi, Pnut(5th Element) sem þá var nýlega komin til landsins, Evo(Throw Down), og Tuff Tim Twist. Bæði Tuff Tim Twist og Evo eru Frá UK.
Stemmingin á Broadway var gríðaleg og troðið var út að dyrum.
Keppt var í tveimur flokkum; einstaklins og hópakeppni. Í einstaklinskeppninni
Kepptust 15 manns um titilinn. Hver og einn gerði solo og eftir það
komust fimm áfram og svo þrír.
Eftir það var keppt í hópakeppninni en í henni kepptust við þrír hópar; Brothers Of Break, Thundercats og B-People.
Thundercats voru meira í þessu upp á djókið. Djókið entist ekki lengi því sá hópur braut glas á gólfinu og ætti að hafa verið dæmdur úr leik fyrir það.
Eftir Thundercats luku sér að böttluðu Brothers Of Break og B-People um titilinn.
B-People brenndu Brothers Of Break og sigruðu semsagt í hópakeppninni. Talað er um að Brothers Of Break hafi bitið Frekar mikið frá Uk Bboy Championship.
Eftir að keppni lauk sýndu Evo og Tuff Tim Twist.
Úrslit í Einstaklingskeppni urðu: 3. Sölvi Fannar, 2. Self One, 1. KrisB.
Hópakeppni: 3. Thundercats, 2. Brothers Of Break, 1. B-People. Þess má geta að Dj á Keppninni var DJ Hootch en hann heldur árlega UK BBoy Championship.
Hiphop menningin blómstraði og reglulega var farið að halda hiphop jömm.
Bboy námskeið voru einnig haldin reglulega og þá af KrisB, Self One og Mumma í Danssmiðjunni.
Heiðar Ástvaldsson flytur inn funk dansarann Lars Ekstrom og auglýsir sem bboy.
Pnut byrjar að kenna bboying hjá Heiðari Ástvaldssyni. Esko Two, Lestu, Illa leikinn, Gretzky, Tiny Twist og fleiri hittast í Dansskól Heiðars Ástvaldssonar og ákveða að stofna crew ásamt Pnut. Fyrst um sinn var crewið nafnlaust en var skýrt Freaky Breakers Crew snemma 1999.
1999
Freaky Breakers Crew ákveða að breyta nafninu á hópnum þar sem allir meðlimir eru ekki sammála um nafnið. Nafnið TFE; The Fifth Element er tekið í notkun. Seint á árinu 1999 mætast The Fifth Element og Shakers á hiphop jammi þar sem Spotlight og klúbburinn var staðsettur á Hverfisgötu. Shakers og The Fifth Element böttluðu þó ekki hafi verið mikið gert úr því og aldrei var víst hver sigruðu.
Bikarmeistarakeppni er haldin í Breiki í Íþróttahúsinu í Vesturbæ. Úrslit urðu: 1. Illa Leikinn, 2. Esko Two, 3. Gretzky, 4. Lestu. (Ef mig minnir rétt.)
2000
Shakers hópurinn leysist upp en The Fifth Element heldur áfram og nær miklum vinsældum. The Ffth Element gerir það gott á sýningum.
The Fifth Element verður fyrir miklum missi þegar Bboy Lucky 7 deyr.
The Fifth Element sýnir á 17 júní á Ingólfstorgi og tileinkar sýninguna Lucky 7.
Hópurinn sem hingað til hefur æft í Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar ákveður að yfirgefa skólann og verða sjálfstæðari. Natasha byrjar að kenna í Kramhúsinu.
Esko Two og Illa Leikinn kenna hjá Heiðari Ástvaldssyni.
Gretzky ferðast til Palermo á sikiley, Ítalíu þar sem hann gerir götu sýningar.
2001
DSÍ í samráði við The Fifth Element héldu íslandsmeistarakeppnina í Bboying 2001 eða ÍM 2001. Keppt var í Þremur flokkum; 13 ára og yngri, 13 ára og eldri og hópakeppni. Í flokki 13 ára og yngri urðu úrslitin: 1. Tiny Twist, 2. Ævar Sveinsson, 3. Friðrik Teódórsson, 4. Tara Sif Haraldsdóttir. Í 13 ára og eldri: 1. Bounce, 2. Gretzky, 3. Esko Two, 4. Alexander Kichen.
Í hópakeppni voru það Gretzky og Esko Two sem skipuðu einn hóp og Bounce og Tiny Twist sem skipuðu hinn hópinn. Úrslit fóru þannig: 1. Bounce & Tiny Twist, 2. Esko Two og Gretski.
Dómarar á keppninni voru Pnut, SelfOne og Gísli Green. Dj á keppninni var DJ Danni.
The Fifth Element ákveður að samkeppnin á Íslandi sé of lítil og heldur með fimm manna hóp til Gautaborgar í Svíðþjóð til að keppa á Scandinavian Battle Of The Year. Hópurinn nær ekki verðlaunasæti en fær góða innsýn í skandinavísku Bboy senunna.
Eldborg, útihátíð á verslunarmannahelginni auglýsir Bboying keppni, eftir fyrirspurn um keppnina, dómara og framvegis fæst það svar að keppnin sé skipulögð í gríni og því ákveður litla en öfuga íslenska bboy senan að hunsa keppnina.
Gretski kennir í DÍH og Esko Two, Illa Leikinn og Lestu kenna hjá Heiðari Ástvalds.
Gretzky heldur fyrstu jólakeppni DÍH og TFE.
Gretzky gefur út fyrsta íslenska bboy myndbandið sem nefnist Spuni, í dag er mjög erfitt að verða sér úti um myndbandið sem eingöngu var gefið út í 100 eintökum.
Myndbandið sýnir það sem Gretzky og 5th Element dansa auk þess sem í myndbandinu eru nokkur stutt viðtöl við Gretzky. Á koverinu er Sketch hannað af Esko Two.
Gretzky fer á UK BBOY Championship í Brixton Academy, London sem áhorfandi.
2002
The Fifth Element ferðast til Oslo til að keppa á Scandinavian Battle Of The Year. Í Oslo æfa þau með crewinu PCC. Hiphop jammið JAMMIN Vol. 1 er haldið í Íþróttasal Menntaskólans Við Sund. Ýmis MC bönd troða upp til styrktar The Fifth Element.
Gretzky heldur aðra jólakeppni DÍH og TFE.
2003
Íslandsmeistarakeppnin 2003 eða ÍM ’03 er haldin samhliða Lotto danskeppni.
Keppt er í tveimur flokkum, byrjenda og framhalds. Í byrjenda sigrar Ýmir Grönvold.
Í Framhalds eru úrslit: 1. Blondie, 2. Att.
Quakster, Jimmy og einn annar meðlimur úr Beef Noodles frá Svíþjóð koma til Íslands ásamt tveimur listdönsurum og sýna í Norrænahúsinu í Reykjavík.
The Fifth Element ferðast til Oslo aftur til að keppa á Scandinavian Battle Of The Year. Sushi sem áður var meðlimur PCC ákveður að keppa með The Fifth Element, ásamt Thomas (PCC) og Tidji.
Í þessari sömu ferð keppa Gretzky, Sushi og Anton fyrir Íslandshönd á keppninni Rock The Spot sem hópurinn Versus.
Gretzky fer á Battle Of The Year International, ekki til að taka þátt en sem Bboy.
2004
The Fifth Element heldur JAMMIN Vol. 2 í Kramhúsinu. Troðið er út að dyrum og keppt er í tveimur flokkum. Dj var Steve Sampling og dómarar voru Gretzky, Sushi og Hanna.
The Fifth Element er boðið til Malmö í Svíðþjóð að keppa á Circle Sensation – Nordic Revolting, á þeirri keppni battla TFE vs. Flow Mo.
Hópnum er einnig boðið til Kaupmannahöfn á Scandinavian Battle Of The Year en hafnar vegna aðsöðuleysis fyrir æfingar.
2005
IM '05 eða Íslandsmeistarakeppnin 2005 er haldin 13. maí í sal Árbæjarþreks. Troðið er út úr dyrum. Keppendur eru ca. 40. talsins. Keppt er í 4. flokkum. Einstaklins - Byrjenda, Hópakeppni - Byrjenda, Einstaklingskeppni - Framhalds, Hópakeppni - Framhalds.
Í Byrjenda flokk, einstaklings eru úrslit: 2. Myriam Guðmundsdóttir. Í byrjendaflokk, hópakeppni eru úrslit: 220 Bgirls, 2. Unknown Crew. Í framhaldsflokk, einstaklins eru útslit:
Ýmir Grönvold.
Gretzky heldur Urban Dance Night í Tjarnabíó í samráði við Unglist. Kvöldið fór fram í nóvember mánuði. 5th Element sýndi Bboying og Funk stíla. Nemendur Natöshu sýndu Hiphop dans. Keppt var í Bboying.
Ata úr Ghost Crew kemur til landsins í stuttu stoppi á ferð sinni til NYC
The Fifth Element heldur til Kaupmannahöfn í júní mánuði og keppir á Scandinavian Battle Of The Year sem fór fram á Vega. Í Ágúst mánuði er The Fifth Element boðið til Arhus á Battlezone keppni en þar keppir TFE vs. Ghost Crew og TFE vs. Arhus eithvað.
2006
The Fifth Element er boðið til Kaupmannahöfn að keppa á 3 vs. 3 keppninni Floor Wars. Keppnin fór fram á Vega.
Pnut og Gretzky fara og keppa ásamt norðmanninum Stigpaa. Á keppninni battla TFE vs. Rumble Pack.
Gretzky heldur keppnina HM ’06 eða Hafnarfjarðarmeistarinn 2006. Keppt er í tveimur flokkum, byrjenda og framhalds. Í framhaldsflokki er úrslit: 1. Ýmir Grönvold, 2. Sigurboði Grétarsson.
Natasha heldur keppnina. Ah Satan ’06 og keppt er í þremur flokkum. Byrjenda. Framhalds í einstaklings og svo hópakeppni.
|